Áherslumál

Þetta eru helstu áherslur mínar í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Ég vil halda áfram að byggja ofan á þann góða árangur sem náðst hefur í Hafnarfirði síðustu 12 ár.

Greiðar og öruggar samgöngur

Umferðarhnútar eru tímaþjófar sem við eigum ekki að sætta okkur við. Hafnarfjörður er ekki biðstofa fyrir gegnumakstur, heldur bæjarfélag þar sem fólk á að komast leiðar sinnar greiðlega og örugglega. Ég vil ráðast í aðgerðir strax til að leysa bráðavanda, en jafnframt tryggja að stóru framtíðarlausnirnar verði að veruleika. Mínar áherslur:

  • Innleiða snjalla ljósastýringu við Hlíðartorg strax til að eyða biðröðum
  • Tryggja varanlega lausn með göngum eða stokk á Reykjanesbraut (Setbergshamar)
  • Ráðast strax í nauðsynlegar endurbætur á Flóttamannavegi
  • Greiðari leiðir fyrir íbúa og minni þungaumferð í byggð

Heilsa og lífsgæði

Lýðheilsa snýst ekki bara um heilbrigðiskerfið heldur um að skapa umhverfi þar sem auðvelt og eftirsóknarvert er að hreyfa sig. Ég vil að Hafnarfjörður sé bæjarfélag þar sem íbúar á öllum aldri hafa aðgang að framúrskarandi aðstöðu til íþrótta og útivistar. Sundlaugarnar okkar og stígakerfið eiga að vera í fremstu röð. Mínar áherslur:

  • Sundlaugar í fremstu röð – uppbygging og viðhald
  • Framúrskarandi aðstaða til íþrótta og tómstunda fyrir alla aldurshópa
  • Öflugt stígakerfi fyrir gangandi og hjólandi um allan bæ
  • Stuðla að virkum lífsstíl og heilsueflingu í nærumhverfinu

Fjölskyldan í fyrirrúmi

Fjölskyldur eru alls konar og þarfirnar mismunandi. Mín sýn er sú að bærinn eigi að laga sig að fjölskyldunni, ekki öfugt. Ég vil einfalda hversdagsleikann með auknum sveigjanleika og raunverulegu valfrelsi. Við megum heldur aldrei gleyma þeim sem byggðu þennan bæ; eldri borgarar eiga skilið virðingu og þjónustu sem hentar hverjum og einum. Mínar áherslur:

  • Einfaldara líf með sveigjanlegri þjónustu
  • Valfrelsi í dagvistun og skólastarfi
  • Tryggja eldri borgurum góða þjónustu við hæfi hvers og eins
  • Öflugir innviðir sem halda vel utan um börn og ungmenni

Menning og bæjarbragur

Hafnarfjörður er besti bærinn út af stemningunni og bæjarandanum. Sem formaður menningar- og ferðamálanefndar hef ég lagt áherslu á að skapa umgjörð þar sem mannlíf, veitingastaðir og kaffihús blómstra. Ég vil halda áfram að:

  • Hlúa að sál bæjarins, gleðinni og stoltinu sem við finnum öll fyrir
  • Styðja við fjölbreytt mannlíf og veitingastaði
  • Efla menningarstarfsemi og viðburði
  • Gera Hafnarfjörð enn meira aðlaðandi stað fyrir íbúa og gesti

Fjölbreytt húsnæði

Húsnæðisþörf fjöskyldunnar breytist oft í tímans rás eftir stærð. Sú þörf tekur oft mið af fjölda fölskyldumeðlima. Við viljum ýmist stækka eða minnka við okkur húsnæði og ég vil tryggja fjölsbreytileika í húsnæðisvali svo allir geti búið í hverfinu sem þeim líður vel í. Mínar áherslur:

  • Fjölbreytileiki í húsnæðisframboði
  • Húsnæði sem hentar fólki á öllum æviskeiðum
  • Góð skipulagning nýrra hverfa
  • Stuðla að því að fólk geti búið þar sem þeim líður vel

Börn og forvarnir

Í staðinn fyrir að búa til biðlista eftir sérfræðingum vil ég efla forvarnir í skólunum. Gefum börnum og foreldrum verkfæri til að takast á við lífið og byggja upp seiglu. Þetta er hjálp til sjálfshjálpar. Ég vil:

  • Efla forvarnir í skólum frekar en biðlista eftir sérfræðingum
  • Gefa börnum og foreldrum verkfæri til að byggja upp seiglu
  • Halda áfram að lækka aldur leikskólainnritunar (brúum bilið)
  • Auka frelsi foreldra til að komast aftur að vinna

Hagkvæmni og frelsi

Ég vil reka bæinn af sömu skynsemi og fyrirtæki. Hver króna skiptir máli og við eigum alltaf að leita leiða til að gera betur. Ég er ekki feimin við að skoða einkaframkvæmd og útboð ef það nýtir skattpeninga betur. Mín nálgun:

  • Reka bæinn af skynsemi - hver króna skiptir máli
  • Skoða einkaframkvæmd og útboð þar sem það hentar
  • Nýta skattpeninga sem best
  • Frelsi fyrir fólk og fyrirtæki til að blómstra

Viltu vita meira?

Ég er alltaf til í að ræða þessi mál og önnur sem þér þykja skipta máli. Hafðu endilega samband.